Hagar hf.: Hagar ganga frá kaupum á P/F SMS í Færeyjum
28 November 2024 - 3:05AM
UK Regulatory
Hagar hf.: Hagar ganga frá kaupum á P/F SMS í Færeyjum
Í tilkynningu þann 22. október 2024 var greint frá því að Hagar
hf. og eigendur P/F SMS í Færeyjum hefðu undirritað skilyrt
samkomulag (e. Head of Terms) um kaup og sölu á öllu hlutafé í SMS.
Í dag, þann 27. nóvember 2024, var endanlegur kaupsamningur vegna
viðskiptanna undirritaður, en öll skilyrði vegna kaupanna hafa
verið uppfyllt, þ.m.t. áreiðanleikakönnun og samþykki
eftirlitsaðila í Færeyjum. Markmið kaupanna er að renna frekari
stoðum undir og styrkja rekstur Haga á sviði dagvöruverslunar og
auka skilvirkni rekstrar og vöruúrval SMS í Færeyjum.
Kaupverð (e. enterprise value) í viðskiptunum nam tæplega 467
mDKK og virði hlutafjár (e. equity value) tæplega 327 mDKK.
Kaupverð byggir m.a. á rekstri og áætlunum SMS fyrir rekstrarárið
2024, en tekjur í ár eru áætlaðar um 730 mDKK og hagnaður fyrir
fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) um 63 mDKK. Kaupverð byggir
einnig á mati á fasteignasafni SMS. Vert er að benda á að áhrifa
leigustaðals IFRS 16 gætir ekki í uppgefnum afkomutölum SMS.
Hagar greiða kaupverð með reiðufé að upphæð um 267 mDKK og
afhendingu 13.867.495 hluta í Högum að virði 60 mDKK. Meðalgengi á
hlutum Haga í viðskiptunum var 85,23 kr., sem byggir að stærstu
leyti á dagslokagengi Haga þann 18. október. Endanlegt uppgjör
vegna kaupanna gæti breyst lítillega tengt rekstrarafkomu SMS á
næstu 2-3 árum. Hagar fjármögnuðu hluta kaupverðs með nýju 200 mDKK
láni en til viðbótar yfirtaka Hagar nettó skuldir SMS upp á u.þ.b.
140 mDKK. Skuldsetning Haga eykst sem því nemur.
Miðað er við að uppgjörsdagur vegna kaupanna sé mánudagurinn 2.
desember 2024 og mun P/F SMS því verða hluti af samstæðuuppgjöri
Haga á síðasta fjórðungi rekstrarársins 2024/2025. Nánar verður
gert grein fyrir viðskiptunum og fjármögnun þeirra við birtingu
uppgjörs fyrir rekstur Haga á 3. ársfjórðungi rekstrarársins
2024/2025 þann 16. janúar nk.
SMS er leiðandi verslunarfélag í Færeyjum og rekur m.a. átta
Bónus lágvöruverðsverslanir víða í Færeyjum, fjórar smærri
verslanir í Þórshöfn undir nafninu Mylnan og stórverslunina
Miklagarður í Þórshöfn. SMS er einnig umsvifamikið í annarri
starfsemi, m.a. rekstri stærstu verslunarmiðstöðvar Færeyja, fjölda
veitingastaða, smávöruverslana, brauð- og kökugerðar, kjötvinnslu
og líkamsræktarstöðva. Að auki á félagið fjölbreytt fasteignasafn
sem telur um 11.000 m2 sem er að mestu nýtt undir eigin
starfsemi en að hluta leigt til þriðja aðila. Ríflega 700 manns
starfa hjá SMS og dótturfélögum, en forstjóri félagsins er Niels
Mortensen. Niels er jafnframt eigandi NM Holding sem átti 50% hlut
í SMS fyrir kaup Haga, en 50% voru í eigu félagsins P/F Farcod.
Heildartekjur SMS á rekstrarárinu 2023 námu tæplega 700 mDKK og
hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam um 56
mDKK.
Kaup Haga á SMS eru í samræmi við markmið Haga og stefnu sem
kynnt var fyrr á árinu um að horfa til nýrra tækifæra til að efla
starfsemi félagsins enn frekar, bæði tengt kjarnastarfsemi og nýjum
tekjustraumum eða stoðum í rekstri. Með kaupunum á SMS munu Hagar
auka umsvif í dagvöruverslun en um leið myndast tækifæri til að
efla þjónustu beggja félaga og ná fram auknu hagræði í rekstri. Þar
er m.a. horft til tækifæra í vöruframboði dagvöruverslana,
kostnaðarsamlegð, hagræðingu og fjármögnun.
Fyrrum hluthafar SMS, þ.e. Sp/f NM Holding og P/F Farcod, verða
áfram eigendur í gegnum hlutafjáreign sína í Högum, og mun Niels
Mortensen áfram leiða starfsemi SMS í Færeyjum. Takmarkanir eru á
sölu hluta í eigu Niels til næstu ára.
Hagar og SMS þekkja vel til hvers annars og eiga félögin
sameiginlegar rætur í rekstri Bónus verslana í báðum löndum, en
fram til ársins 2010 áttu Hagar hlut í SMS. Stefnumótandi áherslur
félaganna eru svipaðar þar sem sérstök áhersla er lögð á að bjóða
viðskiptavinum ávallt upp á hagkvæma matvörukosti, en um leið að
standa fyrir stöðugri framþróun í verslun til að tryggja góða
upplifun viðskiptavina.
Afkomuspá Haga fyrir rekstrarárið 2024/25 hefur verið aðlöguð
vegna viðskiptanna með SMS og áhrifa út yfirstandandi rekstrarár
Haga. Gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og
afskriftir (EBITDA) verði á bilinu 14.000-14.500 millj. kr.
Finnur Oddsson, forstjóri Haga:
„Það er mér mikil ánægja að bjóða SMS í Færeyjum velkomin í
Haga fjölskylduna. Við höfum á síðustu mánuðum kynnst starfsemi SMS
vel, en fyrirtækið er bæði vel rekið og þjónar mikilvægu hlutverki
í færeysku samfélagi. Áherslur í starfsemi SMS, m.a. á hagkvæmustu
matarkörfuna og góða upplifun í verslunum, ríma vel við leiðarljós
okkar hjá Högum. Við erum stolt af því að vera treyst fyrir
eignarhaldi á SMS til framtíðar og munum styðja við áframhaldandi
þróun og vöxt félagsins, Færeyingum til hagsbóta. SMS mun áfram
njóta forystu Niels Mortensen, forstjóra, sem hefur leitt kröftuga
uppbyggingu félagsins undanfarna tvo áratugi. Við hlökkum til
samstarfs við Niels og framúrskarandi hóp starfsfólks í Færeyjum um
að efla góðan rekstur enn frekar, m.a. með því að nýta tækifæri til
að auka hagkvæmni, efla vöruval og þjónustu við landsmenn.“
Niels Mortensen, forstjóri SMS:
„Með undirritun kaupsamnings við Haga er mikilvægur og
ánægjulegur áfangi í höfn fyrir okkur hjá SMS og fyrir verslun í
Færeyjum. Framúrskarandi starfsfólk SMS hefur á undanförnum
áratugum byggt upp leiðandi verslunarfyrirtæki sem hefur ávallt
haft það að forgrunni að stuðla að bættum lífskjörum Færeyinga með
aðgengi að hagkvæmri matvörukörfu, áhugaverðum verslunum og í
seinni tíð veitingastöðum. Með aðkomu Haga höfum við ekki aðeins
fengið nýjan og traustan eiganda heldur einnig samstarfsaðila sem
mun gera okkur kleift að gera jafnvel enn betur en áður. Það
er okkur fyrrum eigendum hjartans mál að við tökum áfram þátt í
rekstri og eignarhaldi SMS, nú í gegnum hlutafjáreign í Högum. Við
hlökkum til að vinna með Högum að vexti og velgengni SMS og treysta
um leið viðskipta- og vinasamband á milli Færeyja og
Íslands.“
Ráðgjafar Haga í viðskiptunum voru Hamrar Capital Partners,
BBA//Fjeldco og KPMG.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, í síma
530-5500 eða á tölvupósti fo@hagar.is
Hagar Hf (LSE:0Q52)
Historical Stock Chart
From Nov 2024 to Dec 2024
Hagar Hf (LSE:0Q52)
Historical Stock Chart
From Dec 2023 to Dec 2024