TIDMAMRQ 
 

TORONTO, ONTARIO, Jan. 24, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- ("Amaroq" or the "Corporation")

Rannsóknarboranir á Target West svæðinu innan Sava rannsóknarleyfisins staðfesta nýtt 120 km koparbelti í Suður-Grænlandi

** Borholur í Target West fóru í gegnum kopar í berginu frá yfirborði **

*** Niðurstöðurnar gefa til kynna tilvist nýs 120 km koparbeltis í Suður-Grænlandi ***

TORONTO, ONTARIO -- January 24, 2024 -- Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSXV, NASDAQ Iceland: AMRQ), an independent mine development corporation with a substantial land package of gold and strategic mineral assets across in Southern Greenland, are pleased to announce the provisional results from its 2023 exploration programme on the Sava copper project, at the centre of the developing South Greenland copper belt.

James Gilbertson, yfirmaður rannsókna hjá Amaroq:

Niðurstöður rannsóknarborana í Sava gefa frekari vísbendingar um gríðarlega stórt kopar/molybdenum svæði á Target West svæðinu. Þessar niðurstöður, á svæði sem áður var litið framhjá, gefa til kynna að þar sé að finna gríðarlega stórt ,, porphyry" jarðfræðilíkan. Niðurstöðurnar eru jafnframt til vitnis um styrkleika jarðfræðiteymis Amaroq sem og þeirra rannsóknaraðferða sem félagið hefur tileinkað sér. Target West er fyrsta koparsvæðið af mörgum innan rannsóknarleyfa Amaroq. Við höfum þegar staðfest mælingar með allt að 11.6% kopar í Kopperminebugt, porphyry jarðfræðilíkan í Sava með sýni allt að 2.0% kopar/molybdenum ígildi og mörg önnur samskonar svæði, auk svokallaðra epithermal svæða á belti sem er yfir 120 km langt.

Árið 2023 hefur reynst afar árangursríkt ár og er einungis fyrsta árið af þremur í fullfjármagnaðri rannsóknaráætlun félagsins í Gardaq samstarfinu. Við höfum þegar fundið mikið magn efnis nálægt yfirborði. Við munum í framhaldinu leggja áherslu á svæði þar sem finna má hæsta hlutfallið á hvert tonn (e .grade) af kopar og molybdenum. Haldi rannsóknir okkar áfram að gefa góða raun þá gerum við ráð fyrir að vera í þeirri stöðu að geta skilgreint arðsemi og stærð verkefnis af þessu tagi innan 3-5 ára og í kjölfarið setja upp áætlun til að koma svæðinu í vinnslu.

Helstu atriði

   -- Boraðir voru 2200 metrar í fjórum holum á tveimur 
      svæðum innan Sava rannsóknarleyfisins og var 
      verkefnið klárað innan tíma og fjárheimilda. 
 
   -- Sava verkefnið er núna skilgreint sem koparbelti sem nær 
      yfir 120km í gegnum Suður-Grænland sem gerir þetta 
      að mögulegu koparbelti á heimsmælikvarða 
 
   -- Amaroq hefur þegar skilgreint 36 rannsóknarsvæði 
      á koparbeltinu sem eru líklega beintengd gömlum 
      kvikuhólfum sem urðu til fyrir 1,8 milljörðum 
      árum síðan. 
 
   -- Þessar niðurstöður verða samþættar 
      við umfangsmiklar rafsegulsmælingar sem félagið hefur 
      framkvæmt yfir stórum hluta koparbeltisins, og munu 
      niðurstöður þeirra rannsókna verða birtar 
      á öðrum ársfjórðungi. 

Target West

   -- Target West er fyrsta rannsóknarsvæði Amaroq innan Sava 
      sem fellur undir rannsóknir sem eru langt á veg komnar (e. 
      advanced exploration). Svæðið var fyrst borað 
      árið 2022 þegar kopar og molybdenum fannst á yfir 21 
      metra við yfirborð í bergi sem kallast Unit 1. 
 
   -- Árið 2023 voru boraðar 3 holur og hver og ein fór 
      í gegnum kopar og molybdenum berg í Unit 1 og mældist 
      lengst tæplega 345 metrar, þar af svæði með 
      hátt hlutfall allt að 18 metrar af 0.31% kopar/molybdenum 
      ígildi. 
 
   -- Sérfræðingar Amaroq telja að á Target West 
      svæðinu fyrirfinnst svokallað kopar "porphyry" 
      jarðfræðilíkan. Svæði af slíku tagi 
      eiga það til að vera gríðarlega stór, 
      líkt og fyrirfinnst til dæmis í Andes-fjöllum í 
      Suður-Ameríku, þar sem hlutfall kopars er jafnan frá 
      0,2-1% af kopar, en um er að ræða námusvæði 
      þaðan sem mest magn af kopar er unnið í heiminum. 
 
   -- Skoðun á yfirborði og sýnatökur hafa sýnt 
      fram á gríðarstór ummerki kopar og molybdenum á 
      yfirborðinu eða á a.m.k. 3 ferkílómetrar 
      svæði (560 fótboltavellir), sem gefur til kynna að um 
      stórt kerfi sé að ræða. 

Target North

   -- Fyrsta tilraunaborhola í 2 km löngu svokölluðu 
      epithermal kerfi skilaði ekki neinum málmi 
 
   -- Jarðfræðingar Amaroq munu skoða þessar 
      niðurstöður nánar áður en 
      ákvörðun verður tekin um hvort það telst 
      fýsilegt að halda áfram rannsóknum á þessu 
      tiltekna svæði. 

References to the accompanying presentation on the Sava results on the website by clicking the link below: https://www.amaroqminerals.com/investors/presentations/

 
 

(END) Dow Jones Newswires

January 24, 2024 02:00 ET (07:00 GMT)

Copyright (c) 2024 Dow Jones & Company, Inc.
Amaroq Minerals (LSE:AMRQ)
Historical Stock Chart
From Apr 2024 to May 2024 Click Here for more Amaroq Minerals Charts.
Amaroq Minerals (LSE:AMRQ)
Historical Stock Chart
From May 2023 to May 2024 Click Here for more Amaroq Minerals Charts.